Vill bara bidjast afsökunar á thví ad hafa ekki skrifad neitt undanfarid. Tharsídustu helgi var ég í skiptinemabúdum thar sem allir skiptinemarnir frá Costa Rica voru vidtstaddir. Thad var helvíti mikid fjör og gaman ad fá ad hitta svona marga. Var í vandraedalegari kantinum hins vegar thegar thad kom ad talent-show thar sem allir thurftu ad gera eitthvad sem tengdist menningu theirra. Öllum Skandinavíubúunum og Íslendingunum var hópad saman fyrir atburdinn. Audvitad var thad fyrsta sem okkur datt í hug (sirka 10 mín ádur en thetta átti ad byrja) sem var sameiginlegt med löndunum var Abba thannig ad vid stódum fyrir framan 80 manns og dönsudum gamla diskódansa medan vid vorum ad syngja Mama Mia. Thetta var allt saman mjög gaman, nema hvad ad helmingurinn taladi thýsku allan tímann.
Sídan leid ósköp normal vika, skóli og heimilislíf, og svo kom helgin. Thá klifradi madur upp á fjall med Thjódverja, skiptinema frá AFS í Costa Rica sem hafdi farid til Ungverjalands, prófessor í Háskóla Costa Rica og ödrum skiptinema frá Nýja Sjálandi. Thetta var léttur göngutúr í sirka 30 mínútur gegnum umhverfi sem líktist frumskógi (er med nokkrar myndir frá svaedinu en tharf einhverja góda sídu til ad hosta thetta stöff. Megid gjarnan koma med tillögur). Thar sátum vid í dágóda stund bladrandi og bídandi eftir thví ad tunglid léti sjá sig. Thegar loksins kom ad thví kom thoka sem var thad thykk ad madur sá varla lappirnar á sér. Thá ákvádum vid ad koma okkur nidur og löbbudum gengum thykkan skóg, í thoku, í myrkri, í návist nokkura ledurblakna (sem var osom) med lítil vasaljós. Thad eina sem vantadi var gaur í svartri skykkju med vígtennur sem hoppadi út úr runna og sagdi "good eeveeneeng". Thad var hins vegar ágaetis substitute thegar Thjódverjinn fór fram úr okkur, slökkti ljósid sitt og hoppadi sídan út úr runna og öskradi. Ad segja ad okkur brá lýsir ástandinu sem átti sér stad ekki neitt allt of vel.
Eftir thennan góda göngutúr fór madur heim og í baelid til ad geta vaknad snemma til ad fara til Santa Rosa til ad sjá menningarhátíd. Og med snemma á ég vid klukkan 3:00 um nóttina. Vid fórum af stad 4:00, komum til Santa Rosa 7:00 og vorum thar í nokkra klukkutíma ad horfa á litríka dansa og hlusta á Costa Ricanska tónlist. Thad var frekar huggulegt ogg eftir á fórum vid ad skoda lítid safn rétt hjá. Eftir thad fórum vid til Puntarenas á ströndina í smá tíma og allir skiptinemarnir (ég medtalinn) fóru á bananabát http://www.coolestspringbreak.com/image-files/cancun-banana-boat.jpg . Eftir ad hafa drukkid okkar skammt af paekil ákvádum vid ad fara heim. Vid komum sirka klukkan 19:00 og allir voru ad drepast úr threytu. Okkur var sleppt út í midbaenum thar sem fjölskyldan tók á móti manni adeins seinna eftir messu. Thá ákvádu thau ad fara med mann í einhverja veislu út í sveit til klukkan 21:00. Thegar madur kom sídan loksins heim tók vid thaegilegasti svefn sem nokkurn tímann hefur átt sér stad en hann vardi adeins í 6 klukkutíma thar sem ad madur thurfti ad vakna klukkan 6 til ad fara í skólann. Ad svefnleysinu fráskildu var thetta yndisleg ferd.
Sídan eru fyrstu prófin ad fara ad taka vid í thessari viku thannig ad madur er farinn ad stúdera m.a. félagsfraedi og edlisfraedi á spaensku. Thad gengur ágaetlega ad skilja en ad muna er adeins erfidara en thetta er ekkert voda mikid stress vegna thess ad einkunnirnar hérna skipta nákvaemlega engu máli.
Sídan fékk madur fyrstu kynni af alvöru heimthrá eftir fyrsta mánudinn hérna (fyrir sirka 2 vikum). Madur saknadi (og saknar) fjölskyldunnar, vinina, bekkjarins, hljómsveitarinnar og eiginlega bara alla sem madur thekkir. Sídan var madur farinn ad sakna undarlegri hluti eins og herbergisins síns heima, engjathykkni, langar naetur, midnaetur sólina og fleira í theim dúr. Thad var í fyrsta skipti sem madur virkilega grét eins og smábarn eftir ad hafa komid hingad. En sídan batnadi thad heilmikid í naestu viku og nú er allt pura vida (frasi sem Costa Ricanar elska ad nota).
Fjöslkyldan er búin ad vera dugleg ad draga mann med í veislur og má thar nefna 2 afmaelisveislur, 1 steggjapartý, Sankti Valentínusar veislu, nokkrar eins konar sveitaveislur og öruglega meira sem madur er ad gleyma. Svo er madur líka búinn ad fylgjast med útför og cuaresma messu sem voru í thyngri kantinum.
Svo er verid ad fasta núna á heimilinu thannig ad thad er ekkert kjöt búid ad vera sídustu daga. Ég hélt ad thessi hefd vaeri örugglega skelfileg of óbaerileg ad éta ekkert kjöt í meira ein viku en thau hafa verid dugleg vid ad finna upp á alls konar réttum án kjöts.
Dettur ekkert meira í hug til ad skrifa í bili :S
Long blog is long.
ReplyDelete